Spennandi starf í nýjum íbúðakjarna!
Jöklasel 2 leitar eftir starfsfólki!
Í Jöklaseli 2 er að opna nýr íbúðakjarni í byrjun árs 2027 og við leitum eftir jákvæðum, duglegum og góðhjörtuðum einstaklingum til að vera þátttakandi í að móta góða þjónustu og koma henni vandlega til skila. Einstakt tækifæri til að þjónusta stórkemmtilega einstaklinga og færa þeim hlýju og öryggi á sínu nýja heimili og aðstoða þau að takast á við áskoranir sjálfstæðrar búsetu.
Um er að ræða vaktavinnu (dagvaktir, kvöldvaktir, næturvaktir og önnur hver helgi) og er starfshlutfall allt frá 40% til 100% - allt eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veita stuðning sem miðar að því að efla félagsfærni og sjálfstæði, tryggja þátttöku innan og utan heimilis, auka lífsgæði og virkni í samfélaginu.
Hæfniskröfur
- Góð almenn menntun og íslenskukunnátta C1, reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg – ekki nauðsynleg.
- Frumkvæði, stundvísi, sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Umsækjandi þarf að vera 18 ára eða eldri og hafa gilt ökuskírteini Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Frekari upplýsingar um starfið
ellen.bjorg.bjornsdottir@reykjavik.is
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis