Til baka á starfasíðu

Stuðningsfulltrúi óskast í Dalskóla (Copied)

Dalskóli auglýsir eftir stuðningsfulltrúum til að aðstoða Dalskólabörn á grunnskólaaldri. Starfshlutfall er í kringum 70 %. 

Hlutastarf Dalskóli 113
Sækja um

Dalskóli er samrekinn grunnskóli ásamt frístundaheimilinu Úlfabyggð með um 500 börnum.

Lögð er áhersla á sveigjanlega starfshætti og samvinnu. Í skólanum ríkir viðhorf virðingar fyrir einstaklingnum og sérkennum hans. Lögð er áhersla á lifandi, skemmtilegt og skapandi skólastarf. Skólinn starfar eftir hugmyndafræðinni um jákvæðan aga. Dalskóli er þróunarskóli í leiðsagnarnámi.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Aðstoðar nemendur við daglegar athafnir og þátttöku í skólastarfi.
  • Aðstoðar nemendur við að ná settum viðmiðum samkvæmt skólanámsskrá/einstaklingsnámskrá undir leiðsögn kennara og deildarstjóra sérkennslu.
  • Leitast við að styðja nemendur í félagslegum samskiptum í skólastarfinu.
  • Fylgir einum eða fleiri nemendum eftir á ferðum þeirra um skólann, í frímínútum og vettvangsferðum.

Hæfniskröfur

Fríðindi í starfi

  • Menningarkort- bókasafnskort
  • Samgöngustyrkur
  • Sundkort
  • Heilsuræktarstyrkur

Starfið er laust frá 1. janúar 2027 eða eftir samkomulagi en um er að ræða tímabundið starf út skólaárið 2026-2027. Starfshlutfall er 60-75%.

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.

Frekari upplýsingar um starfið veita Auður Valdimarsdóttir skólastjóri Dalskóla & Kolbrún Þorsteinsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 411 7860 eða með tölvupósti audur.valdimarsdottir@reykjavik.is og kolbrun.g.thorsteinsdottir@reykjavik.is

Sækja um