Til baka á starfasíðu

Frístundaleiðbeinandi á frístundaheimilinu Draumalandi

Skemmtileg hlutastörf frístundaleiðbeinenda í fristundaheimilinu Draumalandi við Austurbæjarskóla 

Hlutastarf Draumaland, Austurbæjarsk 101
Sækja um

Frístundaheimilið Draumaland leitar að áhugasömu og hæfu starfsfólki í hlutastörf á frístundaheimilið. Áhugasömum er bent á að hægt er að hefja starfið strax í byrjun desember eða í samkomulagi eftir stjórnanda frístundaheimilisins.

Á frístundaheimilunum er boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf þegar hefðbundnum skóladegi 6-9 ára barna lýkur um 13:30 og er starfið kjörið fyrir þau sem eru í skóla og leita að skemmtilegu hlutastarfi með námi eða þau sem vilja vinna í 50% starfi eftir hádegi.

Meginmarkmið starfsins er að efla félags- og samskiptafærni barna í gegnum leik og starf og að virkja þau til þátttöku. Hæft og áhugasamt starfsfólk er lykillinn að því að veita börnunum og foreldrum sem sækja þjónustu til frístundaheimilið Draumalands fyrsta flokks þjónustu og gegna hæfir og áhugasamir frístundaleiðbeinendur/frístundaráðgjafar þar veigamiklu hlutverki.

Frístundaheimilið Draumaland heyrir undir skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar, sem leggur áherslu á starfsþróun og vellíðan starfsfólks og við störfum samkvæmt menntastefnu Reykjavíkurborgar.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-9 ára börn.
  • Leiðbeina börnum í leik og starfi.
  • Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
  • Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk skóla og aðra sem koma að starfi frístundaheimilisins.

Hæfniskröfur

Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Í boði eru hlutastörf 20-50% eftir hádegi.

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.

Sé óskað nánari upplýsinga um starfið má senda tölvupóst á Selmu Özkan, forstöðukonu Draumalands á netfangið: selma.ozkan@reykjavik.is

Ráðningarform - Timabundin ráðning til 10. júní 2027

Sækja um