Til baka á starfasíðu

Virkniþjálfi í félagsstarfi

Samfélagshúsið í Bólstaðarhlíð 43 auglýsir eftir virkniþjálfa í félagsstarfi í 100% starf. Í húsinu fer fram fjölbreytt félagsstarf fyrir fólk á öllum aldri.

Fullt starf Samfélagshús Bólstaðarhlíð 105
Sækja um

Samfélagshúsið í Bólstaðarhlíð 43 auglýsir eftir virkniþjálfa í skemmtilegt starf. Í húsinu fer fram fjölbreytt félagsstarf þar sem aðal markmiðið er að efla og virkja fólk til félagslegrar þátttöku og stuðla að bættri heilsu og líðan fólks. Um framtíðarstarf er að ræða og æskilegt er að viðkomandi að geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipulagning, undirbúningur og framkvæmd félagsstarfs í samráði við þátttakendur og verkefnastjóra
  • Virkja íbúa sem og aðra hverfisbúa til þátttöku í félagsstarfi
  • Heldur utan um og styður sértækt hópastarf fyrir fólk
  • Starfar í félagsstarfsteymi
  • Sér um að uppfæra og auglýsa dagskrá, námskeið og viðburði
  • Er í samstarfi með heimaþjónustuteymi, ráðgjöfum og öðrum þeim sem vinna að því að virkja fólk til samfélagsþátttöku
  • Er í samstarfi við leikskóla, frístundaheimili, íþróttafélög og aðra samstarfsaðila í hverfinu
  • Heldur utan um verkefnið Vítamín í Val, heilsueflingu eldra fólks ásamt verkefnastjóra og samstarfsaðilum
  • Sér um innkaup á aðföngum fyrir félagsstarf í samvinnu við verkefnastjóra

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af félagsstarfi aldraðra
  • Skipulagsfærni og reynsla af umsjón viðburða
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Íslenskukunnátta B2 eða hærri samkvæmt samevrópska tungumálarammanum
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar

Hvaða fríðindi fylgja starfinu?

Betri vinnutími

Heilsuræktarstyrkur

Samgöngustyrkur

Sundkort og menningarkort

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnhildur Þorsteinsdóttir verkefnastjóri í gegnum tölvupóstfangið ragnhildur.thorsteinsdottir@reykjavik.is.

Sækja um