Vesturbæjarskóli - Stuðningsfulltrúi
Stuðningsfulltrúi aðstoðar nemendur sem þurfa sérstakan stuðning í námi, félagslegum samskiptum og athöfnum daglegs lífs. Hann vinnur í samstarfi við kennara og annað fagfólk að því að efla sjálfstæði, færni, þátttöku og vellíðan nemenda í skólastarfinu.

Markmið er að tryggja nemendum stuðning við hæfi svo þeir geti tekið virkan þátt í skólastarfi, eflt sjálfstæði sitt, þroskað styrkleika sína og notið vellíðanar og velgengni í námi og félagslegu umhverfi.
Stuðningsfulltrúar:
- eru kennurum til aðstoðar við að sinna einum eða fleiri nemendum sem þurfa sérstaka aðstoð.
- aðstoða nemendur eftir þörfum hvers og eins við athafnir daglegs lífs.
- auka færni og sjálfstæði nemenda félagslega, í námi og í athöfnum daglegs lífs.
- stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.