Til baka á starfasíðu

Leiðbeinandi í Virknimiðstöð Reykjavíkur - starf sem skiptir máli

Virknimiðstöð Reykjavíkur leitar að stuðningsfulltrúa í 100% tímabundið starf til 10 mánaða, með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Starfið felst í að styðja fatlað fólk í daglegri virkni og stuðla að umhverfi þar sem virðing, sjálfstæði og valdefling eru í fyrirrúmi.

Fullt starf Virknimiðstöð - Smiðjan 112
Sækja um

Vilt þú sinna starfi sem skiptir máli? Virknimiðstöð Reykjavíkur leitar að stuðningsfulltrúa í 100% tímabundið starf til 10 mánaða, með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Starfið felst í að styðja fatlað fólk í daglegri virkni og stuðla að umhverfi þar sem virðing, sjálfstæði og valdefling eru í fyrirrúmi. 

Við leitum að nærgætnum og lausnamiðuðum einstaklingi sem vill starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi og hefur ánægju af að styðja fólk til aukins sjálfstæðis, þátttöku og bættra lífsgæða.

Um starfsemina Undir Virknimiðstöð Reykjavíkur heyra Smiðjan, Opus og Iðjuberg ásamt smíðastofu, tónlistarhúsi og listasmiðju. Starfið byggir á hugmyndafræði sjálfstæðs lífs og þjónandi leiðsögn, með áherslu á skapandi og valdeflandi umhverfi.

Helstu verkefni

· Styðja og hvetja einstaklinga til daglegrar virkni og starfa.

· Sinna umönnun og sýna skilning á fjölbreyttum tjáningarformum.

· Vinna eftir einstaklingsáætlunum af nærgætni og með jákvæðu viðmóti.

· Veita leiðsögn og vera góð fyrirmynd í daglegu starfi.

Hæfniskröfur

· Góð almenn menntun.

· Reynsla af starfi með fötluðu fólki eða sambærilegum störfum er kostur.

· Góð samskiptahæfni og hæfni til sjálfstæðrar vinnu og teymisvinnu.

· Frumkvæði og áreiðanleiki ásamt sveigjanlegumvinnubrögðum.

· Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglurReykjavíkurborgar.

· Æskilegt er að hafa ökuréttindi.

· Kunnátta í íslensku á C1-stigi samkvæmt Evrópska tungumálarammanum.

Starfsstöðin er á annarri hæð að Skeifunni 8.

Vinnutími: kl. 8:30–15:45. Vinnuvikan er 36 stundir.

Skúlína Vigdísardóttir veitir nánari upplýsingar um starfið í gegnum netfangið skulina.vigdisardottir@reykjavik.is.

Sækja um