Til baka á starfasíðu

Vogaskóli - íslenskudeild

Auglýst er eftir kennara í 50% stöðu í íslenskudeild sem staðsett er í Vogaskóla.

Hlutastarf Vogaskóli 104
Sækja um

Auglýst er eftir kennara í 50% stöðu í íslenskudeild sem þjónustar nokkra grunnskóla. Leitað er eftir metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi kennara sem er tilbúinn til að sinna kennslu í íslenskudeild. Þar eru nemendur sem eru nýfluttir til Íslands og eru að hefja nám í íslensku. Þeir eru á aldrinum 10 - 16 ára.

Vogaskóli er heildstæður grunnskóli með um 430 nemendur og um 80 starfsmenn. Skólinn er staðsettur við Skeiðarvog í Vogahverfinu í Reykjavík. Þar er einnig sérdeild fyrir einhverfa nemendur. Unnið er eftir menntastefnu Reykjavíkur ,,Látum draumana rætast“, uppbyggingarstefnunni og verið er að innleiða aðferðir leiðsagnarnáms. Í skólanum ríkir jákvæður skólabragur sem einkennist af virðingu, samkennd, samvinnu, gleði og ábyrgð. 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kennsla í íslenskudeild.
  • Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við aðra starfsmenn skólans.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við fagfólk og foreldra.

Hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari
  • Menntun og hæfni til að kenna flestar greinar á miðstigi
  • Íslenskukunnátta á stigi B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum Self-assessment Grids (CEFR) - European Language Portfolio (ELP) (coe.int)
  • Sveigjanleiki og góð hæfni í samskiptum
  • Faglegur metnaður, frumkvæði og sjálfstæði
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Hreint sakarvottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar

Frekari upplýsingar um starfið

Starfið er laust frá og með 16. nóvember 2026. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og launanefndar sveitarfélaga. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Snædís Valsdóttir, skólastjóri, snaedis.valsdottir@reykjavik.is sími: 411-7370.

Sækja um