Starfsfólk óskast í skaðaminnkandi úrræði fyrir konur
Málaflokkur heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir leitar að metnaðarfullu starfsfólki til að starfa með konum með miklar og flóknar þjónustuþarfir á heimili sínu.
Um er að ræða morgun-, kvöld-, helgar- og næturvaktir í allt að 85% starfshlutfalli.
Málaflokkur heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir leitar að metnaðarfullu starfsfólki í til að starfa með konum með miklar og flóknar þjónustuþarfir á heimili sínu.
Markmið með þjónustu heimilisins er að mæta þörfum íbúa á heildstæðan og einstaklingsmiðaðan hátt.
Starfsfólk veitir íbúum sértækan stuðning með það að markmiði að aðstoða íbúa við að halda heimili, eiga innihaldsríkt líf, styrkja sjálfsmynd og efla vald yfir eigin aðstæðum.
Á heimilinu er starfað eftir skaðaminnkandi hugmyndafræði og batamiðaðri nálgun og er áhersla lögð á notendasamráð. Starfsfólk starfar inn á heimili íbúa og er mikilvægt að starfsfólk treysti sér í að sinna krefjandi verkefnum, þar sem mannleg reisn og samkennd við íbúa er höfð að leiðarljósi.
Um er að ræða morgun-, kvöld-, helgar- og næturvaktir í 35-85% starfshlutfalli.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Framfylgja einstaklingsáætlun íbúa og verklögum því tengdu.
- Vinna með íbúum út frá skaðaminnkandi hugmyndafræði og einstaklingsmiðaðari nálgun.
- Veita íbúum félagslegan stuðning og samveru í þeirra daglega lífi
- Leiðbeina og veita íbúum sértækan stuðning með tiltekt, þrif og persónulegt hreinlæti eftir því sem við á.
- Veita íbúum félagslegan stuðning og samveru í þeirra daglega lífi.
- Almenn heimilisþrif
Hæfniskröfur
- Góð almenn menntun
- Reynsla af vinnu með fólki með fjölþættan vanda
- Umburðalyndi og virðing fyrir fólki sem glímir við virkan vímuefnavanda.
- Þekking eða áhugi á skaðaminnkandi hugmyndafræði, batahugmyndafræði og notendasamráði.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og faglegum vinnubrögðum.
- Frumkvæði, sveigjanleiki og sjálfstæð vinnubrögð.
- Hæfni til að setja heilbrigð mörk í samskiptum
- Hæfni til að takast á við krefjandi verkefni af yfirvegun.
- Íslenskukunnátta B2 eða hærra (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma)
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
Hlunnindi
- Stytting vinnuvikunnar
- Samgöngu- og heilsuræktarstyrkir
- Sund- og menningarkort
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Eflingar. Nánari upplýsingar um starfið veitir Fanney Svansdóttir, forstöðukona í tölvupósti fanney.svansdottir@reykjavik.is