Erum að leita af starfsmanni í stuðningsteymið okkar á Klömbrum
Starfsmaður óskast til að starfa í stuðningsteymi leikskólans.
Leikskólinn Klambrar er 6 deilda leikskóli staðsettur við hliðina á Háteigskirkju. Börnin í leikskólanum eru á aldrinum 1-6 ára. Einkunnar orð leikskólanns eru Vinátta-Gleði-Sköpun.
Hæfniskröfur:
• Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með börnum æskileg
• Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
• Íslenska B2 (sjá, Samevrópski matsramminn fyrir tungumál)
Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
Að vinna með börnum er skapandi þar sem hver og einn hefur fjölmörg tækifæri til að flétta styrkleika sína og áhugamál inn í verkefnin í leikskólanum. Það sem þú hefur fram að færa getur verið einstakt framlag inn í starfið og reynsluheim bæði barnanna og samstarfsfólks.
Í leikskólanum er lögð áhersla á að skapa áhugavert og hvetjandi vinnuumhverfi, að allir starfsmenn fái að njóta sín og starfið veiti góða reynslu fyrir fólk sem hefur áhuga á samskiptum, uppeldi og skapandi starfi.
Nánari upplýsingar um leikskólann er að finna á heimasíðu leikskólans klambrar.is og á Instagram, Klambrar2022 og á netfanginu klambrar@reykjavik.is