Til baka á starfasíðu

Leikskólastjóri - Brekkuborg

Staða leikskólastjóra í leikskólanum Brekkuborg er laus til umsóknar. Leitað er að leikskólakennara með farsæla stjórnunarreynslu og leiðtogahæfileika sem er tilbúinn að leiða metnaðarfullt starf í leikskólanum.

Fullt starf Leikskólinn Brekkuborg 112
Sækja um

Vinátta, virðing og lýðræði eru leiðarljós leikskólans og rauði þráðurinn í starfinu. Áhersla er á samskipti, samkennd, umburðarlyndi, þátttöku barna og að allir upplifi sig sem hluta af samfélaginu.

Lýðræðisleg þátttaka barna er áberandi í leik og starfi leikskólans. Börnin eru virkir þátttakendur í eigin námi. Starfið byggir á hugmyndafræði Reggio Emilia, þar sem börnin rannsaka, skapa, hafa áhrif á daglegt starf og unnið er með áhugasvið hvers og eins. Umhverfi inni og úti er skipulagt þannig að það hvetji börn til leiks, uppgötvana og náms.

Í Brekkuborg er litið á uppeldi barna sem sameiginlegt verkefni heimilis og leikskóla og lögð mikil áhersla á samstarf við foreldra, gott upplýsingaflæði og jákvæð samskipti.

Brekkuborg eru stoltur Regnbogaskóli þar sem og er lögð áhersla á að skapa samfélag þar sem öll börn finna að þau tilheyra og fjölskyldur þeirra eru viðurkenndar og virtar.

Starfið byggir á Menntastefnu Reykjavíkurborgar og þeirri sýn að börn öðlist menntun og reynslu sem gerir þeim kleift að hafa jákvæð áhrif á umhverfi sitt og samfélag.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vera faglegur leiðtogi leikskólans og móta framtíðarstefnu hans innan ramma laga, reglugerða, aðalnámskrár og stefnu Reykjavíkurborgar.
  • Bera ábyrgð á daglegu starfi í leikskólanum.
  • Skipuleggja foreldrasamstarf í samvinnu við foreldra og starfsmenn.
  • Hafa yfirumsjón með innra mati á starfi leikskólans og umbótaáætlunum.
  • Hvetja til þróunar og nýbreytni í leikskólastarfi.
  • Stýra rekstri leikskólans á grundvelli fjárhagsáætlunar, sýnir ábyrgð, ráðdeild og framsýni í nýtingu fjármuna.
  • Bera ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun.
  • Skipuleggja tengsl skólans við ýmsa samstarfsaðila.

Hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara.
  • Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á leikskólastigi.
  • Reynsla af stjórnun.
  • Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða.
  • Þekking og reynsla á rekstri, áætlanagerð og fjármálastjórnun.
  • Hæfni til að byggja upp jákvæða og faglega starfsmenningu.
  • Lipurð og hæfni í samskiptum.
  • Sjálfstæði og frumkvæði.
  • Áhugi og reynsla af að leiða þróunarstarf.
  • Íslenskukunnátta C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.

Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.

Nánari upplýsingar

Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari og greinargerð um framtíðarsýn umsækjanda á starf í leikskólanum.

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags stjórnenda í leikskólum.

Um er að ræða fullt starf og verður ráðið ótímabundið.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildur Lilja Jónsdóttir, deildarstjóri á leikskólaskrifstofu skóla- og frístundasviðs, í tölvupósti Hildur.Lilja.Jonsdottir@reykjavik.is eða í síma 863-2871.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Sækja um