Leikskólakennari/leiðbeinandi í ungbarnaleikskóla Hallgerðargötu
Viltu koma og vinna í nýjum leikskóla með yngstu börnunum!
Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast til starfa í ungbarnaleikskóla í Hallgerðargötu.
Leikskólinn er í nýju húsnæði og er öll aðstaða til fyrirmyndar.
Í Hallgerðargötu erum við að læra og leika alla daga. Málþroski, hreyfing og félagsfærni er okkar grunnstef enda börnin að stíga sín fyrstu skref í leikskóla.
Einkunnarorð eru: Umhyggja - gleði - vinátta
hvað þarf meira, komdu og vertu með :)
Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun æskileg
- íslenska C1 skv. evrópska tungumálarammanum
- Reynsla af vinnu með börnum á leikskólaaldri æskileg
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Frumkvæði, áhugi og faglegur metnaður í starfi
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
Fríðindi í starfi
- Heilsustyrkur
- Sundkort
- Samgöngustyrkur
- 38 stunda vinnuvika
- Menningarkort
_______________________________________________
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags
Nánari upplýsingar um starfið veita: Anna Ben. Blöndal, leikskólastjóri og Anna Margrét Hermannsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri
netfang: brietartun@reykjavik.is - sími: 4116781