Til baka á starfasíðu

Leikskólakennari/leiðbeinandi í ungbarnaleikskóla Bríetartúni

Viltu koma og vinna í nýjum leikskóla með yngstu börnunum!

Fullt starf Leikskólinn Bríetartúni 105
Sækja um

Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast til starfa í ungbarnaleikskóla í Bríetartúni. 

Leikskólinn er í nýju húsnæði og er öll aðstaða til fyrirmyndar. 

Í Bríetartúni erum við að læra og leika alla daga. Málþroski, hreyfing og félagsfærni er okkar grunnstef enda börnin að stíga sín fyrstu skref í leikskóla. 

Einkunnarorð eru: Umhyggja - gleði - vinátta

hvað þarf meira, komdu og vertu með :)

Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun æskileg
  • íslenska C1 skv. evrópska tungumálarammanum
  • Reynsla af vinnu með börnum á leikskólaaldri æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði, áhugi og faglegur metnaður í starfi
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar

Fríðindi í starfi

  • Heilsustyrkur
  • Sundkort
  • Samgöngustyrkur
  • 38 stunda vinnuvika
  • Menningarkort

_______________________________________________

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags

Nánari upplýsingar um starfið veita: Anna Ben. Blöndal, leikskólastjóri og Hólmfríður Jóhannesdóttir, aðstoðarleikskólastjóri

netfang: brietartun@reykjavik.is - sími: 4116781

Sækja um