Matartæknir Droplaugarstaðir
Droplaugarstaðir Hjúkrunarheimili óska eftir matartækni til starfa í eldhús heimilisins
Um vaktavinnu er að ræða og unnið er aðra hvora helgi.
Viðkomandi þarf að geta eldað máltíðir fyrir heimilisfólk og starfsfólk
Droplaugarstaðir
Droplaugarstaðir er hjúkrunarheimili með áherslu á heimilislegt umhverfi og sjálfsákvörðunarrétt íbúa.
Allur matur heimilisins er eldaður á staðnum.
Droplaugarstaðir er með virkt gæðakerfi og fékk ISO vottun árið 2020 fyrst hjúkrunarheimila á Íslandi. Í stefnu heimilisins eru öryggi, virkni og vellíðan íbúa, starfsfólks og fjölskyldna í öndvegi.
Unnið er eftir Eden alternative stefnunni.
Við leggjum áherslu á metnað í starfi, fagleg vinnubrögð og samvinnu íbúa og starfsfólks.
Íbúar eru 87 á 4 deildum, allir búa í sérbýli með baðherbergi.
Við erum staðsett við Snorrabraut, í hjarta Reykjavíkur og stutt í almenningssamgöngur.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn matvælaframleiðsla í eldhúsi Droplaugarstaða.
- Frágangur matvæla samkvæmt gæðahandbók og fyrirmæli.
- Uppvask og frágangur í eldhúsi
- Þrif í eldhúsi og matsal.
Hæfniskröfur
- Matartæknir.
- Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði.
- Reynsla af störfum í eldhúsi nauðsynleg.
- Þarf að geta eldað máltíð fyrir yfir 100 manns.
- Fumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Hreint sakavottorð skv. reglum Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
- Sundkort
- Menningarkort
- Bókasafnskort
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngusamningur
Nánari upplýsingar um starfið
Ágúst Valdimarsson, Yfirmatreiðslumaður
Netfang: Agust.Valdimarsson@reykjavik.is