Til baka á starfasíðu

Stuðningsfulltrúi í sértæku starfi

Hagaskóli leitar að stuðningsfulltrúa í sértækt starf, 80% staða. 

Fullt starf Hagaskóli 107
Sækja um

Hagaskóli er safnskóli í Vesturbæ Reykjavíkur með tæplega 600 nemendur í 8. til 10. bekk og um 80 starfsmenn. Spennandi starf í skóla þar sem lögð er áhersla á jákvæðan skólabrag, skapandi verkefni og leiðsagnarnám.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Aðstoða nemendur við daglegar athafnir og virka þátttöku í skólastarfi
  • Vinna eftir áætlun sem kennarar hafa útbúið
  • Aðstoða nemendur við að fylgja settum reglum um hegðun, umgengni og vinnubrögð
  • Leitast við að styðja nemendur í félagslegum samskiptum innan og utan kennslustunda

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt er evrópska tungumálarammanum
  • Uppeldismenntun eða menntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Reynsla af starfi með börnum og/eða unglingum með fötlun er kostur
  • Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Dugnaður, jákvæðni og ábyrgðarkennd

Frekari upplýsingar

Starfið er laust nú þegar. Laun eru samkvæmt samningum Reykjavíkurborgar og Sameykis.

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Inga Tómasdóttir, deildarstjóri mannauðs og rekstrar, gudrun.inga.tomasdottir@reykjavik.is 

Sækja um