Til baka á starfasíðu

Leikskólakennari í Tjörn

Leikskólinn Tjörn óskar eftir leikskólakennara til starfa.

Fullt starf Leikskólinn Tjörn 101
Sækja um

Leikskólinn Tjörn er fjögurra deilda leikskóli með 70 börnum á aldrinum 2–6 ára. Skólinn er starfræktur í tveimur húsum, annars vegar við Tjarnargötu við Tjörnina í Reykjavík og hins vegar á Öldugötu, steinsnar frá Landakotstúni.

Nánasta umhverfi leikskólans er einstakt og býður upp á fjölbreytt námstækifæri. Í nágrenni skólans eru Hljómskálagarðurinn, Landakotstún, Hólavallagarður, miðbærinn, Reykjavíkurhöfn, fjöldi almenningsgarða, fjaran við Ægisíðu og margar helstu menningarstofnanir borgarinnar, svo sem Listasafn Íslands, Listasafn Reykjavíkur og Borgarbókasafnið.

Við leitum að skapandi, jákvæðu og áhugasömu fólki með leikskólakennaramenntun, reynslu eða áhuga á starfi með ungum börnum. Í Tjörn leggjum við áherslu á hlýlegt, faglegt og lifandi leikskólastarf þar sem frumkvæði barna, vinátta og gleði eru höfð að leiðarljósi.

Skólinn starfar í anda Reggio Emilia þar sem litið er á barnið sem hæfileikaríkan, skapandi og virkan þátttakanda í eigin námi. Við leggjum áherslu á öflugt myndlistarnám, skapandi vinnu, rannsóknir barna og tíðar vettvangsferðir í perlur borgarinnar.

Einkunnarorð Tjarnar eru: Frumkvæði, vinátta og gleði og þau endurspeglast í daglegu starfi með börnunum. Í báðum húsum starfa matreiðslumenn og allur matur er eldaður frá grunni, sem skapar heimilislegt og nærandi umhverfi fyrir börn og starfsfólk.

Leikskólakennari starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og stefnu viðkomandi sveitarfélags.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
  • Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs í samstarfi við deildarstjóra
  • Sinna daglegum verkefnum deildarinnar í samstarfi við aðra starfsmenn og deildarstjóra
  • Hafa samskipti og samvinnu við foreldra í samstarfi við deildarstjóra
  • Sinna öðrum verkefnum sem deildarstjóri og leikskólastjóri felur starfsmanni

Hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum. Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Íslenskukunnátta B2 skv. samevrópska tungumálarammanum
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.

Fríðindi í starfi

  • Menningarkort
  • Bókasafnskort
  • Sundkort
  • 36/38 stunda vinnuvika fyrir 100% starf
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngusamningur þegar á við
  • Frír matur í hádeginu sem er eldaður frá grunni í eldhúsi skólans af matreiðslumeistara

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi séttarfélags.

Forsenda ráðningar er að aflað sé upplýsinga frá sakaskrá ríkisins að fengnu upplýstu samþykki umsækjenda í því skyni að uppfylla skilyrði laga og ráðningaraðila fyrir ráðningu í starf.

Starfið er laust frá 1. desember 2026 eða fyrr.

Nánari upplýsingar um starfið veita Hulda Ásgeirsdóttir leikskólastjóri og María Worms aðstoðarleikskólastjóri í síma 411-3650 og í tölvupósti tjorn@reykjavik.is

Sækja um