Til baka á starfasíðu

Skemmtileg hlutastörf í frístundaheimilum í Grafarholti og Grafarvogi

Starfsfólk óskast í hlutastarf skólaárið 2026-2027 í frístundaheimilin Brosbæ í Engjaskóla, Fjósið við Sæmundarskóla, Hvergiland í Borgaskóla, Kastala í Húsaskóla, Regnbogaland í Foldaskóla Stjörnuland í Ingunnarskóla og Tígrisbæ við Rimaskóla. Um er að ræða almenn störf sem og stuðning við 6-9 ára börn.

Hlutastarf Frístundamiðstöðin Brúin - barnasvið 112
Sækja um

Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar starfrækir frístundaheimili við alla grunnskóla borgarinnar og býður upp á fjölbreytt frístundastarf þegar hefðbundnum skóladegi 6-9 ára barna lýkur.

Meginmarkmið starfsins er að efla félags- og samskiptafærni barna í gegnum leik og starf. Þar starfa frístundaráðgjafar og frístundaleiðbeinendur en þeir eru lykillinn að því að veita íbúum fyrsta flokks þjónustu.

Verkefni og ábyrgð

  • Skipuleggja og framkvæma faglegt frístundastarf fyrir 6-9 ára börn.
  • Leiðbeina börnum í leik og starfi.
  • Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.

Hæfniskröfur

Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Fríðindi í starfi

  • Heilsuræktarstyrkur
  • Sundkort
  • Menningarkort
  • Bókasafnskort
  • Samgöngustyrkur

Í boði eru hlutastörf, 20-50%, klukkan 13-17.

Tímabundin ráðning.

Gott er að umsækjendur taki fram hversu háu hlutfalli óskað er eftir, á hvaða dögum viðkomandi getur unnið og ef óskað er eftir ákveðnu frístundaheimili.

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.

Nánari upplýsingar veitir Þóra Melsted, thora.melsted@reykjavik.is.

Sækja um