Frístundaleiðbeinandi - frístundaheimilið Krakkakot við Hvassaleitisskóla
Frístundaheimilið Krakkakot við Hvassaleitisskóla óskar eftir frístundaleiðbeinanda og stuðningsfulltrúa í 30-50% starf eftir hádegi. Skemmtilegt og lifandi starf með börnum í 1. - 4. bekk.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar starfrækir frístundaheimili við alla grunnskóla borgarinnar. Á frístundaheimilunum er boðið uppá fjölbreytt tómstundastarf þegar hefðbundnum skóladegi lýkur. Þar starfa frístundaráðgjafar og frístundaleiðbeinendur og eru þeir lykillinn að því að veita íbúum fyrsta flokks þjónustu.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar leggur áherslu á starfsþróun og vellíðan starfsfólks.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-9 ára börn í 1. - 4. bekk.
- Leiðbeina börnum í leik og starfi.
- Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
- Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla og aðra sem koma að frístundaheimilinu.
Hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
- Áhugi á að vinna með börnum.
- Frumkvæði og sjálfstæði.
- Færni í samskiptum.
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Í boði eru tímabundin hlutastörf 30-50% eftir hádegi. Viðkomandi þarf að geta unnið á mánudögum og þriðjudögum og geta hafið störf sem fyrst.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.
Fríðindi í starfi
- Heilsuræktarstyrkur
- Sundkort
- Menningarkort
- Bókasafnskort
- Samgöngustyrkur
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Hafdís Oddgeirsdóttir, Forstöðukona
Tölvupóstur hafdis.oddgeirsdottir@reykjavik.is