Til baka á starfasíðu

Leikskólakennari óskast til starfa miðsvæðis í Reykjavík

Við leitum eftir áhugasömu fólki í störf í leikskólum Reykjavíkurborgar. Leikskólalífið er fjölbreytt, skemmtilegt og krefjandi og enginn dagur er eins. Á hverjum degi getum við sameinast um að gera heiminn betri fyrir ung börn. 

Fullt starf Leikskólinn Klambrar 105
Sækja um

Leikskólakennari óskast á leikskólann Klambra.

Klambrar eru 6 deilda leikskóla. Við erum staðsett í hjarta borgarinnar við hliðina á Háteigskirkju.

Börnin eru á aldrinum 1 til 6 ára. Einkunnaorð leikskólans eru Vinátta-Gleði- Sköpun.

Nánari upplýsingar um leikskólann er að finna á heimsíðu okkar www.klambrar.is

Gott er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Að vinna með börnum er skapandi þar sem hver og einn hefur fjölmörg tækifæri til að flétta styrkleika sína og áhugamál inn í verkefnin í skólanum. Það sem þú hefur fram að færa getur verið einstakt framlag inn í starfið og reynsluheim bæði barnanna og samstarfsfólks.

Í leikskólunum er lögð er áhersla á að skapa áhugavert og hvetjandi vinnuumhverfi, að allir starfsmenn fái að njóta sín og starfið veiti góða reynslu fyrir fólk sem hefur áhuga á samskiptum, uppeldi og skapandi starfi og í starfi. Börnin eru á aldrinum 1 – 6 ára og læra að mestu í gegnum leik.

Helstu verkefni og ábyrgð:

Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undi stjórn deildastjóra.

Kennarar með leyfisbréf hafa forgang í störf í leikskólum. Einstaklingar með annan dýrmætan bakgrunn og reynslu og eru einnig hvattir til að sækja um.

Hæfniskröfur

• Leyfisbréf kennara

• Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með börnum æskileg

• Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum

• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður

• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

• Íslenska B2 (sjá, Samevrópski matsramminn fyrir tungumál)

Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.

Fríðindi í starfi

Heilsuræktarstyrkur

Sundkort

Menningarkort

Bókasafnskort

Samgöngustyrkur

Laun er samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi stéttarfélags.

Haft verður samband við þig ef þú kemur til greina og þér boðið að koma í viðtal.

Forsenda ráðningar er að aflað sé upplýsinga frá Sakaskrá ríkisins að fengnu upplýstu samþykki umsækjanda í því skyni að uppfylla skilyrði laga og ráðningaraðila fyrir ráðningu í starf.

Frekar upplýsingar um starfið veitir Anna Björk Marteinsdóttir, leikskólastjóri í tölvupósti Anna.Bjork.Marteinsdottir@reykjavik.is eða klambrar@reykjavik.is

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélag.

Sækja um