Til baka á starfasíðu

Aðstoðarskólastjóri

Sæmundarskóli leitar að öflugum og framsýnum aðstoðarskólastjóra sem vill taka þátt í að leiða metnaðarfullt skólastarf í jákvæðu og þróunarmiðuðu skólasamfélagi.

Fullt starf Sæmundarskóli 113
Sækja um

Leitað er að leiðtoga sem hefur brennandi áhuga á skólastarfi og velferð barna, býr yfir sterkri faglegri sýn og hefur getu til að efla samstarf, þróun og árangur í öflugu teymi starfsfólks.

Aðstoðarskólastjóri er hluti af stjórnendateymi skólans og gegnir mikilvægu hlutverki í stefnumótun, þróun og daglegri stjórnun skólans.

Sæmundarskóli er heildstæður grunnskóli með tæplega fjögurhundruð nemendur í 1. – 10. bekk. Skólinn er staðsettur í einstöku umhverfi í Grafarholti. Við skólinn starfa um 60 starfsmenn.

Áhersla Sæmundarskóla er m.a. á teymiskennslu, leiðsagnarnám, nýbreytni og skólaþróun.

Einkunnarorð Sæmundarskóla eru gleði, virðing og samvinna þau eru leiðarljós í starfinu og setja tóninn fyrir skólabraginn þar sem allir eru að læra.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að leiða daglega stjórnun skólans í samstarfi við skólastjóra og aðstoðarskólastjóra sem gegnir staðgengilshlutverki skólastjóra í hans fjarveru.
  • Að móta og framfylgja sýn og stefnu skólans í samstarfi við starfsfólk og nemendur.
  • Að leiða skipulag og þróun helstu þátta skólastarfs í samstarfi við stjórnunarteymi skólans.
  • Að efla öflugt samstarfi innan skólasamfélagsins og stuðla að farsælum samskiptum.
  • Að standa vörð um farsæld, velferð og nám nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk.
  • Að vera faglegur leiðtogi á sviði kennslu, skólaþróunar og nýbreytni.
  • Að efla jákvæða starfsmenningu, faglegt lærdómssamfélag og teymisvinnu meðal starfsfólks.

Hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
  • Framhaldsnám og/eða reynsla af stjórnun og/eða þróunarstarfi í grunnskóla æskileg.
  • Þekking og reynsla af kennslu á grunnskólastigi.
  • Leiðtoga- og stjórnunarhæfileikar.
  • Reynsla og áhugi á að starfa í hvetjandi og árangursríku skólasamfélagi.
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar og sveigjanleiki í starfi.
  • Faglegur metnaður, sjálfstæði, skipulagshæfileikar og frumkvæði.
  • Íslenskukunnátta C1 samkvæmt samevrópskum staðli um tungumálakunnáttu.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Nánari upplýsingar

Umsókn skal einnig fylgja kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni umsækjanda til starfsins, upplýsingum um farsæl verkefni sem hann hefur leitt í skólastarfi, ásamt upplýsingum um umsagnaraðila og öðrum gögnum sem málið varðar.

Ráðið verður í starfið frá og með 1. nóvember 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veitir G Eygló Friðriksdóttir, skólastjóri gudjona.eyglo.fridriksdottir@reykjavik.is

Sækja um