Til baka á starfasíðu

Sérkennari/Þroskaþjálfi/Leikskólakennari

Sérkennari, þroskaþjálfi, leikskólasérkennari eða starfsmaður með sambærilega menntun óskast til starfa í leikskólanum Geislabaugi. 

Fullt starf Leikskólinn Geislabaugur 113
Sækja um

Um er að ræða fjölbreytt starf sem felst aðaðllega í því að fylgja eftir börnum/barni sem þarfnast örvun og aðstoð í hinum ýmsu aðstæðum. Starfið er gefandi og lærdómsríkt þar sem starfsmenn fá góða leiðsögn sérfræðinga.

Leikskólinn Geislabaugur er 5 deilda leikskóli með 107 börnum. Aðal áhersla er lögð á að börnunum líði vel og blómstri í leikskólanum og við horfum til hugmyndafræði Reggio Emilia þar sem börnum er gefið frelsi til sköpunar og leiks í fallegu og hvetjandi umhverfi.

Leikskólinn er í innleiðingu nýju menntastefnu Reykjavíkurborgar með aðaláherslu á félagsfærni og sjálfseflingu þar sem við styðjumst við jákvæðan aga sem við erum einnig að innleiða. Einkunnarorð og gildi leikskólans eru Virðing-sköðpun-gleði-jafnrétti.

Helstu verkefni og ábyrgð:

- Að veita barni með sérþarfir leiðsögn og stuðning.

- Að eiga samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa.

- Að vinna að gerð einstaklingsnámskrá og fylgja henni eftir.

- Sinna þeim verkefnum er varðar sérkennslu, og öðrum störfum innan leikskólans sem yfirmaður felur honum.

Hæfniskröfur:

- Þroskaþjálfamenntun, leikskólasérkennaramenntun, eða önnur sambærileg menntun.

- Reynsla af sérkennslu er æskileg.

- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.

- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.

- Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi.

- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.

Fríðindi í starfi:

Menningarkort

Samgöngustyrkur

Sundkort

36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf

Heilsuræktarstyrkur

Frekari upplýsingar um starfið veitir Elín Þóra Böðvarsdóttir leikskólastjóri í síma 4113872 netfangið: elin.thora.bodvarsdottir@reykjavik.is 

Sækja um