Til baka á starfasíðu

Sérkennsla - Leikskólinn Hulduheimar

Leikskólinn Hulduheimar óskar eftir leikskólakennara, þroskaþjálfa eða einstakling með sambærilega menntun í sérkennsluteymi leikskólans. Um er að ræða 100% stöðu við að sinna sérkennslu. Viðkomandi mun vinna í sérkennsluteymi leikskólans undir handleiðslu sérkennslustjóra.

Fullt starf Leikskólinn Hulduheimar 112
Sækja um

Leikskólinn Hulduheimar óskar eftir leikskólakennara, þroskaþjálfa eða einstakling með sambærilega menntun í sérkennsluteymi leikskólans. Um er að ræða 100% stöðu. Hulduheimar, sem er stækkandi fimm deilda leikskóli þar sem áhersla er lögð á skapandi starf og horft til hugmyndafræði Reggio Emilia. Hugmyndafræðingurinn á bak við stefnuna var Dr. Loris Malagozzi.

Einkunnarorð Hulduheima eru: Virðing – Gleði – Vinátta, sem endurspeglast í gegnum okkar starf.

Starfið er laust og eingöngu um 100% starf að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð:

· Veita börnum með sérþarfir leiðsögn og stuðning

· Eiga samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa

· Vinna að gerð einstaklingsnámskráa og fylgja þeim eftir

· Sinna þeim verkefnum er varða sérkennslu, og öðrum störfum innan leikskólans, sem yfirmaður felur honum.

Hæfinskröfur:

  • Leikskólasérkennaramenntun, þroskaþjálfamenntun eða önnur sambærileg menntun
  • Reynsla af sérkennslu og stuðningi æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
  • Tölvukunnátta
  • Hreint sakavottorð
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði, hæfniviðmið B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum

Fríðindi í starfi:

  • Menningarkort – bókasafnskort
  • Samgöngustyrkur
  • Sundkort
  • 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf
  • Heilsuræktarstyrkur

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Inga Birna Sigurðardóttir Leikskólastjóri s: 411-3810

inga.birna.sigurdardottir@reykjavik.is

Sækja um