Leikskólakennari, leikskólaliði eða leiðbeinandi
Viltu koma og starfa sem leikskólakennari, leikskólaliði, leiðbeinandi á faglegum og skemmtilegum vinnustað? Þá hvetjum við þig til að sækja um starf í Hulduheimum. Í Hulduheimum starfar sterkur og samheldinn hópur kennara sem langar að bæta við í hópnum.
Leikskólakennari, leikskólaliði, leiðbeinandi óskast til starfa í leikskólanum Hulduheima, sem er stækkandi fimm deilda leikskóli þar sem áhersla er lögð á skapandi starf og horft til hugmyndafræði Reggio Emilia. Hugmyndafræðingurinn á bak við stefnuna var Dr. Loris Malagozzi.
Einkunnarorð Hulduheima eru: Virðing – Gleði – Vinátta, sem endurspeglast í gegnum okkar starf.
Starfið er laust og eingöngu um 100% starf að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara.
Hæfniskröfur
Leikskólakennaramenntun, leyfisbréf kennara eða sambærileg menntun æskileg.
Áhugi á skapandi leikskólastarfi í anda Reggio Emilia.
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
Frumkvæði, áhugi og metnaður í starf.
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
Stundvísi og áreiðanleiki.
Mjög góð íslenskukunnátta skilyrði í bæði töluðu og rituðu máli -Stig B1 skv. samevrópsaka tungumálarammanum
Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
Menningarkort – bókasafnskort
Samgöngustyrkur
Sundkort
36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf
Heilsuræktarstyrkur
Hádegismatur
Forgangur í leikskóla / afsláttur af dvalargjaldi.
Frekari upplýsingar um starfið:
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ
v/ Félags leikskólakennara eða viðeigandi stéttarfélags.
Starfshlutfall 100%
Nafn sviðs: Skóla- og frístundasvið
Nánari upplýsingar um starfið veitir.
Inga Birna Sigurðardóttir Leikskólastjóri, sími: 411-3810