Til baka á starfasíðu

Deildarstjóri

Deildarstjóri ungbarnaleikskóli Bríetartúni

Fullt starf Leikskólinn Bríetartúni 105
Sækja um

Við leitum að metnaðarfullum deildarstjóra í ungbarnaleikskóla við Bríetartún

Leikskólinn er fjögra deilda með 15 börn á deild. Við leitum að leikskólakennara í teymið sem hefur metnað og áhuga í að þróa áfram starf á yngsta skólastiginu. Mikil áhersla er á markvissa málörvun, listsköpun, hreyfingu og sjálfbærni.

Leikskólinn hefur unnið að þróunarverkefni með Barnasáttmálann og er réttindaskóli. Framfarir og gleði barnanna eitt af því sem gera starfið ómetanlegt.

Einkunnarorð leikskólans eru: Umhyggja - gleði – vinátta

Helstu verkefni og ábyrgð:

- Að skipuleggja starf deildarinnar í samstarfi við leikskólastjóra

- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu

- Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram fer á deildinni

- Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá

- Að bera ábyrgð á foreldrasamvinnu

Hæfniskröfur:

- Leikskólakennaramenntun eða leyfisbréf kennara. Ef ekki fæst leikskólakennari í starfið kemur til greina að ráða einstakling með aðra menntun sem nýtist í starfi.

- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með börnum

- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum

- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður

- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

- Góð íslenskukunnátta íslenskukunnátta á a.m.k. stigi C1 https://www.coe.int/en/web/portfolio/self-assessment-grid

- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar

Fríðindi í starfi:

- Forgangur í leikskóla fyrir börn starfsmanna

- Lægri leikskólagjöld í Reykjavík fyrir starfsmenn

- 36 - 38 stunda vinnuvika 

- Sundkort/Menningarkort, Samgöngustyrkur, Heilsustyrkur

Frekari upplýsingar um starfið

Um er að ræða 100% stöðu sem er laus nú þegar eða eftir samkomulagi.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélaga.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Ben Blöndal, leikskólastjóri, sími 411-6781, tölvupóstur anna.blondal@reykjavik.is

Sækja um