Til baka á starfasíðu

Stuðningsfulltrúi

Óskað er eftir öflugum stuðningsfulltrúum á íbúðarkjarna í Úlfarsárdal.

Um er að ræða 100% starf eða eftir samkomulagi þar sem unnið er í vaktavinnu dag-, kvöld-, nætur- og helgarvaktir og viðkomandi þarf að geta unnið allar vaktir. 

Fjölbreytt vinna í fallegu umhverfi og góðum hópi.

Tækifæri til að taka þátt í þróun innra starfs.

Fullt starf Íbúðakjarni Rökkvatjörn 3 113
Sækja um

Í Rökkvatjörn búa sex einstaklingar og veitt er sólahringsþjónusta.

Unnið er eftir hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf, þjónandi leiðsögn og valdeflingu.

Í Rökkvatjörn er áhersla lögð á jákvæð og uppbyggileg samskipti og miðar þjónustan að því að efla færni og lífsgæði íbúa sem gerir þeim kleift að lifa sjálfstæðu lífi. Fjölbreytt starf í nýlegum íbúðarkjarna.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að hvetja og styðja einstaklinga til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð.
  • Að styðja einstaklinga við athafnir daglegs lífs s.s. við heimilishald og samfélagsþátttöku.
  • Að sinna umönnun og vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan íbúa og aðstoða þá varðandi heilsufarslega þætti eftir þörfum hverju sinni.
  • Að styðja einstaklinga til félagslegrar þátttöku s.s. að rækta félagstengsl, stunda afþreyingu og að sækja menningarviðburði.

Hæfniskröfur

  • Góð almenn menntun sem nýtist í starfi
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Reynsla af starfi með fötluðum æskileg.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, skipulagshæfni, stundvísi og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Góð íslenskukunnátta B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
  • Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Björk Björgvinsdóttir starfandi forstöðumaður

anna.bjork.bjorgvinsdottir@reykjavik.is

Sækja um