Til baka á starfasíðu

Forfallakennari óskast til starfa við Árbæjarskóla

Árbæjarskóli auglýsir eftir forfallakennara á yngra- og unglingastig. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og vill bætast við mjög góðan kennarahóp í góðu og jákvæðu umhverfi. 

Fullt starf Árbæjarskóli 110
Sækja um

Við auglýsum eftir forfallakennara. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og vill bætast við mjög góðan kennarahóp í góðu og jákvæðu umhverfi. Um er að ræða tilfallandi forföll svo og forföll í lengri tíma. 

Árbæjarskóli er heildstæður grunnskóli staðsettur í einstöku umhverfi Elliðaárdalsins. Nemendur eru rúmlega 730 talsins en skólinn er safnskóli á unglingastigi. Starfsmenn skólans eru um 112 og er starfsandi mjög góður. Boðið er upp á fjölbreytt og skapandi nám sem stuðlar að alhliða þroska nemenda með það að markmiði að nemendur verði sjálfstæðir og skapandi einstaklingar í síbreytilegu samfélagi. Skólinn leggur ríka áherslu á vandaða móttöku allra nemenda. Við skólann starfar öflugt foreldrafélag og samvinna við foreldra og grenndarsamfélag er gott.

Helstu verkefni

  • Annast kennslu í samráði við skólastjórnendur og árganga-/fagteymi.
  • Vinnur að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við annað fagfólk og foreldra.

Menntunarkröfur

  • Kennaramenntun og leyfisbréf kennara.
  • Reynsla af kennslu barna og unglinga er æskileg.
  • Hæfni í samskiptum.
  • Faglegur metnaður.
  • Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.
  • Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði.

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags grunnskólakennara.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Erna Þórhallsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 411-7700 eða tölvupósti Gudrun.erna.thorhallsdottir@reykjavik.is eða Guðlaug Sturlaugsdóttir skólastjóri í tölvupósti gudlaug.sturlaugsdottir@reykjavik.is . 

við

Sækja um