Til baka á starfasíðu

Leikskólakennari/leiðbeinandi í Seljaborg

Viltu vera með okkur í að byggja upp leikskóla þar sem metnaður, fagmennska & samheldni vísa veginn?

Við leitum að leikskólakennara sem brennur fyrir faglegu starfi með börnum & vill taka þátt í að skapa öflugt lærdómssamfélag Heilsuefling,sköpun & gleði eru í forgrunni & hér gefst einstakt tækifæri til að hafa áhrif á starfið frá upphafi

Fullt starf Leikskólinn Seljaborg 109
Sækja um

Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast til starfa í leikskólanum Seljaborg, Tunguseli 2, 109 Reykjavík.

Um framtíðarstarf er að ræða.

Skólinn er nú þriggja deilda leikskóli með 48 börn. Fyrirhugað er að opna nýja deild í viðbyggingu sem nú er í undirbúningi. Gert er ráð fyrir að 18 börn verði á nýju deildinni og að leikskólinn verði þá fjögurra deilda með alls 66 börn.

Leikskólinn er staðsettur við Tungusel í Seljahverfi. Í nágrenninu er Seljadalur þar sem umhverfið er afar fallegt og fjölbreytt í óspilltri náttúrunni. Dalurinn býður upp á ótal kennslumöguleika með börnum þar sem m.a. má finna læki, tré, gróður og dýralíf. Það eru fjölbreytt og skemmtileg verkefni framundan í Seljaborg.

Starfsmannahópurinn er samheldinn og innan hans ríkir góður starfsandi.

Óskað er eftir aðila sem er tilbúinn til að taka þátt og þróa starfið og vera um leið hluti af heildarsýn skólans og því faglega starfi sem þar fer fram.

Helstu verkefni og ábyrgð

Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.

Menntunar- og hæfniskröfur 

  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara eða sambærileg menntun og/eða reynsla sem nýtist.
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg.
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum. Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Góð íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt samevrópska matskvarðanum.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar

Fríðindi í starfi

  • Afsláttur af leikskólagjöldum í Reykjavík
  • Ókeypis í sundlaugar Reykjavíkurborgar með S-kortinu
  • Árlegur heilsuræktarstyrkur þegar þú hefur starfað í 6 mánuði
  • Ókeypis bókasafnskort og frítt á söfn með Menningarkortinu 36-38 stunda vinnuvika.
  • Laun eru samkvæmt samningi sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/félags leikskólakennara.

Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, starfið er laust.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Inga Dóra Hlíðdal Magnúsdóttir leikskólastjóri, inga.dora.hliddal.magnusdottir@reykjavik.is

Sækja um