Til baka á starfasíðu

Starfskraftur óskast á skammtímadvöl fyrir börn

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar óskar eftir öflugum og drífandi einstaklingi í starf stuðningsfulltrúa á skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmenni.

Hlutastarf Skammtímadvöl Hólaberg 86 112
Sækja um

Hólaberg

Skammtímadvölin Hólaberg 86 leitar að metnaðarfullum og jákvæðum stuðningsfulltrúa til starfa í skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmenni. Í Hólabergi er veitt sólarhringsþjónusta og dvelja að jafnaði fimm börn og ungmenni í einu. Mikil áhersla er lögð á hlýlegt og heimilislegt umhverfi. Hólaberg lokar í 4 vikur yfir sumartímann.

Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Unnið er á dag,- kvöld,- og helgarvöktum.

Stuðningsfulltrúi vinnur eftir stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum fatlaðs fólks með það að markmiði að efla færni, auka sjálfstæði, stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og auka lífsgæði þeirra sem þjónustað er.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Styður börn og ungmenni við athafnir daglegs lífs og allt sem við kemur heimilishaldi og sjálfshjálp.
  • Sinnir umönnun og er vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan barnanna.
  • Styður einstaklinga til félagslegrar þátttöku s.s. rækta félagstengsl, stunda afþreyingu, sækja menningarviðburði og íþróttir.
  • Framfylgir einstaklingsáætlunum í samráði við einstaklinga og ábyrgðaraðila.
  • Tekur þátt í starfsmannafundum og teymisvinnu sem tengjast starfinu.

Hæfniskröfur

  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki og/eða börnum æskileg.
  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur.
  • Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt hugarfar.
  • Frumkvæði, þolinmæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Íslenskukunnátta B1 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga Clara Magnúsdóttir í síma 411-9514

Sækja um