Leikskólakennari - Hamrar
Viltu vinna á frábærum vinnustað, við í leikskólanum Hömrum erum að leita að leikskólakennara og erum að bíða eftir þér.
Leikskólinn Hamrar í Grafavogi auglýsir eftir leikskólakennara í 100% starf. Næsti yfirmaður er deildarstjóri skólans.
Einkunnarorð leikskólans eru Jákvæðni, Virðing og Samvinna.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Hlunnindi
- Í Hömrum er full vinnustytting eða 4 klst. á viku.
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur noti það umhverfisværnar leiðir í og úr vinnu
- Það er frítt í sund í laugum borgarinnar fyrir starfsfólk
- Menningarkort
- Frítt fæði
- Börn starfsfólks í leikskólum Reykjavíkur fá forgang í leikskóla í Reykjavík
Meginverkefni:
Starfssvið: Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og stefnu viðkomandi sveitarfélags.
Uppeldi og menntun: Vinnur að uppeldi og menntun barnanna. Fylgist vel með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
Stjórnun og skipulagning:
- Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
- Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
Foreldrasamvinna:
- Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.
- Situr foreldrafundi, sem haldnir eru á vegum leikskólans.
Annað:
- Tekur þátt í samstarfi við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast leikskólanum í samráði við deildarstjóra.
- Situr starfsmannafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi leikskólans.
- Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum.
Hæfniskröfur
- Leyfisbréf kennara
- Reynsla af sambærilegu starfi
- Frumkvæði í starfi
- Framúrskarandi hæfni í samskiptum
- Góð aðlögunarhæfni
- Íslenskukunnátta B2 skv. samevrópska tungumálarammanum
Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, starfið er laust.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Ef ekki fæst einstaklingur með kennaramenntun verður litið til annarrar uppeldis- eða sálfræðimenntunar.
Frekari upplýsingar um starfið gefurGuðmunda Júlía Valdimarsdóttirleikskólastjóri í Hömrum í síma 411-3961 eða í gegnum netfangið gudmunda.julia.valdimarsdottir@reykjavik.is eða hamrar@reykjavik.is