Til baka á starfasíðu

Myndlistarkennari

Vegna forfalla óskum við eftir að ráð myndlistarkennara í 70% starf sem fyrst út skólárið. Möguleiki á hærra hlutfalli. 

Hlutastarf Selásskóli - Almennt 110
Sækja um

Við óskum eftir skapandi, öflugum, og metnaðarfullum myndlistarkennara til að taka þátt í mentaðarfullu skólastarfi með okkur í vetur. Um er að ræða 70% starf en möguleiki á hærra hlutfalli. 

Selásskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1. - 7. bekk. Í skólanum eru um 200 nemendur og um 40 starfsmenn. Kjörorð skólans er: Látum þúsund blóm blómstra og gildisáherslur hans eru: Virðing – gleði - vinátta. Boðið er upp á fjölbreytt og skapandi nám sem stuðlar að alhliða þroska nemenda með það að markmiði að nemendur verði sjálfstæðir og skapandi einstaklingar í síbreytilegu samfélagi. Skólinn leggur áherslu á lestur/læsi, sköpun, teymiskennslu og upplýsingatækni. Enn fremur umhverfismennt með það að markmiði að nemendur skilji, þekki og virði umhverfi sitt og náttúru.

Umsókn fylgi ferilskrá, menntunargögn og annað er málið varðar. Frekari upplýsingar um skólann má nálgast á heimasíðu hans www.selasskoli.is

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Annast myndlistarkennslu í samráði við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra.
  • Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum. Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans.
  • Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks.
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.

Hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
  • Menntun og hæfni til myndlistarkennslu.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Faglegur metnaður.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.

Framúrskarandi íslenskukunnátta í ræðu og riti.

Frekari upplýsingar

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags grunnskólakennara.

Umsóknarfrestur til 20.október 2026

Umsókninni skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari auk annarra gagna er málið varðar

Allar nánari upplýsingar um starfið veita Rósa Harðardóttir skólastjóri og Margrét Rós Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri í síma 4116680.

Sækja um