Til baka á starfasíðu

Leikskólakennari / leiðbeinandi

Viltu koma að vinna sem leikskólakennari / leiðbeinandi á faglegum og skemmtilegum vinnustað? Þá hvetjum við þig til að sækja um starf á Lyngheimum.

Á Lyngheimum starfar sterkur hópur kennara sem bíður spenntur eftir að taka á móti nýjum kennara í faghópinn.

Fullt starf Leikskólinn Lyngheimar 112
Sækja um

Leikskólakennari / leiðbeinandi óskast til starfa í leikskólann Lyngheima sem er fjögurra deilda leikskóli við Mururima 2 í Grafarvogi. Áhersla er lögð á skapandi starf og gleði. Leikskólinn er með Grænfánann og er heilsueflandi skóli - vellíðan fyrir alla.

Uppeldisstefna skólans er byggt á hugmyndafræði kenndri við borgina Reggio Emilia á norður Ítalíu. Hugmyndafræðingurinn á bak við stefnuna var Dr. Loris Malagozzi. Einnig er unnið eftir stefnu Reykjavíkurborgar í menntamálum, „Draumar geta ræst."

Leiðarljós Lyngheima eru: Virðing, Umhyggja, Tillitsemi.

Starfið er laust frá 1. nóvember. Um 100% starf er að ræða.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Lyngheimar hefur þrisvar sinnum fengið viðurkenningu sem Fyrirmyndaskóli, einnig urðum við í fyrsta sæti sem Stofnun ársins 2024 í okkar flokki.

Helstu verkefni og ábyrgð

Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara.

Hæfniskröfur

Leikskólakennaramenntun, leyfisbréf kennara eða sambærileg menntun æskileg.

Áhugi á skapandi leikskólastarfi í anda Reggio Emilia.

Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.

Frumkvæði, áhugi og metnaður í starf.

Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.

Stundvísi og áreiðanleiki.

Mjög góð íslenskukunnátta skilyrði í bæði töluðu og rituðu máli -Stig B2 skv. samevrópsaka tungumálarammanum

Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar

Fríðindi í starfi

Menningarkort – bókasafnskort

Samgöngustyrkur

Sundkort

36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf

Heilsuræktarstyrkur

Hádegismatur

Forgangur í leikskóla / afsláttur af dvalargjaldi. 

Frekari upplýsingar um starfið:

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ

v/ Félags leikskólakennara eða viðeigandi stéttarfélags.

Starfshlutfall 100%

Nafn sviðs: Skóla- og frístundasvið

Nánari upplýsingar um starfið veitir.

Kristín Helgadóttir Leikskólastjóri , sími 6647716

kristin.helgadottir@reykjavik.is

Sækja um