Stuðningsfulltrúi óskast við Rimaskóla
Stöðuhlutfall er 70% með möguleika á 100% starfi ef einnig er starfað á frístundaheimili Tígrisbæjar eða þrif.
Starfið er laust nú þegar.
Starfið er frá kl. 08:00-13:40/14:00 og svo gæti frístundastarfið bæst við til að fylla stöðuhlutfallið eða auka þrif.
Rimaskóli er heildstæður grunnskóli frá 1. – 10.bekk og eru nemendur rúmlega 500. Skólinn er hjartað í hverfinu og er verður húsnæðið í endurbótum næsta skólaár. Skólinn er þekktur fyrir frábæran árangur í skák og hafa fjölmargir nemendur skólans fengið viðurkenningu á því sviði. Í starfinu felst aðstoð nemenda í fyrsta bekk í leik og starfi. Útigæsla, stuðningur og aðstoð við kennara.
Menntunar- og hæfnikröfur:
Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
Góð færni í samvinnu og samskiptum
Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
Hreint sakavottorð
Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Nánari upplýsingar veitir Þóranna Rósa Ólafsdóttir skólastjóri í tölvupósti: thoranna.rosa.olafsdottir@reykjavik.is.