Til baka á starfasíðu

Starf matráðs við Norðlingaskóla laust frá 1. janúar 2027

Laust er til umsóknar 100% starf matráðs við Norðlingaskóla frá og með 1. janúar 2027. 

Fullt starf Norðlingaskóli 110
Sækja um

Norðlingaskóli er heildstæður grunnskóli með um 500 nemendur í 1.– 10. bekk. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi í Norðlingaholti. Grunnskóla- og frístundarstarf er samþætt við skólann.

Í Norðlingaskóla leggjum við áherslu á teymiskennslu, samkennslu árganga, einstaklingsmiðað nám, skapandi smiðjuvinnu, gott samstarf við foreldra, nýbreytni og skólaþróun. Allt skólastarf byggir á öflugri teymisvinnu starfsfólks.

Stefna og starf skólans grundvallast á því lífsviðhorfi að hverjum einstaklingi skuli búin námsskilyrði sem gera honum kleift að þroskast og dafna á eigin forsendum og útskrifast úr grunnskóla sem sjálfstæður, sterkur og lífsglaður einstaklingur.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Annast matseld fyrir nemendur og starfsfólk.
  • Hafa umsjón með gerð matseðla.
  • Annast frágang í eldhúsi.
  • Sjá um samskipti við birgja, innkaup á hráefni og skipulagningu í samvinnu við skólastjórnendur.

Hæfniskröfur

  • Matreiðslumenntun eða reynsla af matreiðslu.
  • Þekking á næringarfræði, fæðuofnæmi og rekstri mötuneyta.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Frumkvæði, reglusemi og stundvísi.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni.
  • Hæfni til að vinna undir álagi.
  • Góð íslenskukunnátta.

Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Frekari upplýsingar

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar og Sameykis.

Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn í gegnum ráðningarkerfi Reykjavíkurborgar þar sem starfið er auglýst.

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Anna Gunnarsdóttir, skólastjóri í síma 411-7640 eða með tölvupósti á gudrun.anna.gunnarsdottir@reykjavik.is

Sækja um