Til baka á starfasíðu

Sjúkraliði Efri byggð

Heimahjúkrun auglýsir eftir sjúkraliðum til sstarfa. Starfshlutfall er eftir samkomulagi.

Fullt starf Reykjavíkurborg
Sækja um

Heimahjúkrun efri byggð auglýsir eftir sjúkraliðum til starfa í heimahjúkrun. Starfshlutfall er eftir samkomulagi.

Unnið er eftir samþættri heimaþjónustu heimahjúkrunar, félagsþjónustu og endurhæfingarteymis með það að markmiði að veita örugga og góða þjónustu við fólk í heimahúsum.

Mikil þróunarvinna er á velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Innleiðing velferðartækni ásamt sérhæfðum verkefnum sem tengjast þverfaglegu, hreyfanlegu öldrunarteymi, með það að markmiði að styðja enn frekar við sjálfstæða búsetu aldraðra í eigin húsnæði.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfað er eftir gæðastefnu velferðarsviðs og hugmyndafræði heimahjúkrunar

Markviss og einstaklingsmiðuð hjúkrun

Virk þátttaka í teymisvinnu

Þátttaka í þróun og innleiðingu nýrra verkefna

Hæfniskröfur

  • Sjúkraliðamenntun
  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Stundvísi
  • Gilt ökuleyfi
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar

Nánari upplýsingar um starfið veitir Linda Sjöfn, linda.s.thorisdottir@reykjavik.is eða Ingunn Erla Ingunn.Erla.Aevarsdottir@reykjavik.is

Sækja um