Dönskukennari óskast í Árbæjarskóla
Dönskukennari óskast til starfa við Árbæjarskóla, afleysing í eitt ár.
Árbæjarskóli er heildstæður grunnskóli staðsettur í einstöku umhverfi Elliðaárdalsins. Nemendur eru rúmlega 700 talsins og er skólinn safnskóli á unglingastigi.
Dönskukennari óskast til starfa við Árbæjarskóla. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og vill bætast við mjög gott kennarateymi í góðu og jákvæðu umhverfi.
Árbæjarskóli er heildstæður grunnskóli staðsettur í einstöku umhverfi Elliðaárdalsins. Nemendur eru rúmlega 730 talsins en skólinn er safnskóli á unglingastigi. Starfsmenn skólans eru um 112 og er starfsandi mjög góður. Boðið er upp á fjölbreytt og skapandi nám sem stuðlar að alhliða þroska nemenda með það að markmiði að nemendur verði sjálfstæðir og skapandi einstaklingar í síbreytilegu samfélagi. Skólinn leggur ríka áherslu á vandaða móttöku allra nemenda. Við skólann starfar öflugt foreldrafélag og samvinna við foreldra og grenndarsamfélag er gott.
Helstu verkefni og ábyrgð
Dönskukennsla nemenda í samráði við skólastjórnendur og fagteymi. Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum. Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við annað fagfólk og foreldra.
Hæfniskröfur
- Kennaramenntun og leyfisbréf kennara.
- Sérmenntun í dönsku er æskileg.
- Reynsla af kennslu barna og unglinga er æskileg.
- Hæfni í samskiptum.
- Faglegur metnaður.
- Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.
- Framúrskarandi íslenskukunnátta er skilyrði.
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags grunnskólakennara.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Erna Þórhallsdóttir gudrun.erna.thorhallsdottir@reykjavik.is eða Guðlaug Sturlaugsdóttir í síma- 411-7700 og í tölvupósti gudlaug.sturlaugsdottir@reykjavik.is