Starfsmaður við umönnun í dagþjálfun Esjutúni
Sérhæfð dagþjálfun í Esjutúni leitar að jákvæðum einstakling með góða samskiptahæfileika til starfa við umönnun .
Starfshlutfall er 80-100 % eða eftir nánara samkomulagi.
Sérhæfð dagþjálfun í Esjutúni leitar að jákvæðum einstakling með góða samskiptahæfileika til starfa við umönnun í dagþjálfun Esjutúni. Um er að ræða sérhæfða dagþjálfun fyrir fólk með heilabilun.
Markmið starfsins eru að rjúfa félagslega einangrun og viðhalda/auka getu og færni einstaklingsins eins og kostur er.
Um dagvinnu er að ræða. Starfshlutfall er 80-100 %. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að vera til staðar og að vera vakandi fyrir þörfum þjónustuþega.
- Að aðstoða fólk með athafnir daglegs lífs.
- Virkja frumkvæði og sköpun hvers og eins.
- Að taka þátt í skipulögðu félagsstarfi.
- Ýmis störf sem kunna að verða falin af yfirmanni.
Hæfniskröfur
- Reynsla og áhugi á að starfa með fólki
- Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
- Jákvætt viðmót og góð samstarfshæfni
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnu
- Stundvísi
- Íslenskukunnátta á stigi A2-B1 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma)
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
Fríðindi í starfi
- Samgöngustyrkur
- Heilsustyrkur
- Menningarkort Reykjavíkur
- Frítt í sundlaugar Reykjavíkur
Laun er samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Eflingar
Nánari upplýsingar veitir Guðný Valgeirsdóttir í síma 411-9466 eða með því að senda fyrirspurnir á gudny.valgeirsdottir@reykjavik.is