Til baka á starfasíðu

Leikskólakennari í leikskólann Hlíð

Leikskólinn Hlíð óskar eftir leikskólakennara til liðs við öflugan hóp fagfólks. Um fullt starf er að ræða og æskilegt að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. 

Spennandi tímar framundan í Hlíð þar sem starfsemin flyst í glænýtt húsnæði á vormánuðum 2027.

Hlíð er staðsett í Eskihlíð 17, 105 Reykjavík.

Fullt starf Leikskólinn Hlíð 105
Sækja um

Næsti yfirmaður: Deildarstjóri

Starfssvið: Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og stefnu viðkomandi sveitarfélags.

Meginverkefni

Uppeldi og menntun: Vinnur að uppeldi og menntun barnanna. Fylgist vel með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.

Stjórnun og skipulagning:

  • Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
  • Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.

Foreldrasamvinna:

  • Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.
  • Situr foreldrafundi, sem haldnir eru á vegum leikskólans.

Annað:

  • Tekur þátt í samstarfi við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast leikskólanum í samráði við deildarstjóra.
  • Situr starfsmannafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi leikskólans.
  • Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun í leikskólakennarafræðum, sérkennslufræðum og/eða önnur menntun sem nýtist í starfið, til dæmis önnur kennaramenntun, sálfræði, uppeldis- og menntunarfræði, þroskaþjálfafræði (ef ekki leikskólakennaramenntun)
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum og starfi
  • Farsæl reynsla af teymisvinnu
  • Frumkvæði í starfi og rík ábyrgðartilfinning
  • Faglegur metnaður og vilji til að vaxa í síbreytilegu umhverfi
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar

Fríðindi í starfi

  • Menningarkort og sundkort - frítt í sundlaugar í Reykjavík
  • Fæði á vinnutíma
  • Samgöngustyrkur
  • 36 stunda vinnuvika með möguleika á söfnun tíma til að taka út í fríum
  • Heilsuræktarstyrkur

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags leikskólakennara eða viðeigandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 100%

Nánari upplýsingar um starfið má nálgast hjá Lindu Rún Traustadóttur í síma 411-3580 eða í gegnum tölvupóst hlid@reykjavik.is.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Sækja um