Sérkennari / leikskólakennari / þroskaþjálfi í Grænuborg
Leikskólinn Grænaborg auglýsir eftir sérkennara í fullt starf, starfið er laust nú þegar. Um er að ræða skemmtilegt og gefandi starf þar sem unnið er í teymi sérkennara að menntun og velferð barna í fjögurra deilda leikskóli í miðbæ Reykjavíkur. Grænaborg er við Eiríksgötu 2a, 101 Reykjavík.
Helstu verkefni:
- Að vinna við sérkennslu með sérkennsluteymi Grænuborgar
- Að sinna sérkennslu barna
- Gerð einstaklingsnámskráar og fylgja henni eftir í starfi
- Samvinna og samráð við alla þá sem koma að menntun og uppeldi barns
Hæfniskröfur:
- Leikskólakennaramenntun eða önnur háskólamenntun sem nýtist við sérkennslu
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Lipurð í samskiptum
- Góð íslenskukunnátta, stig B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Frumkvæði og metnaður í starfi
Fríðindi sem fylgja starfinu eru til dæmis:
- Sundkort
- Menningarkort
- Samgöngusamningur
- Heilsueflingarstyrkur
Nánari upplýsingar um starfið veitir:
- Gerður Sif Hauksdóttir, leikskólastjóri, gerdur.sif.hauksdottir@reykjavik.is sími 4114471