Flokkstjóri garðyrkjufólks
Við leitum að metnaðarfullum garðyrkjufræðingi sem nýtur þess að vinna úti og vill sjá árangur vinnu sinnar í umhverfi sem skiptir borgarbúa máli.
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur leitar að flokkstjóra garðyrkjufólks. Við bjóðum upp á fjölbreytt og krefjandi verkefni þar sem þú færð tækifæri til að hafa áhrif á umhverfið í borginni.
Flokkstjóri ber ábyrgð á að viðhalda og bæta græn svæði í borgarlandinu. Meðal verkefna flokkstjóra eru plantanir á trjám, runnum, fjölæringum og sumarblómum, útfærsla og umhirða á blómabeðum og blómakerjum í görðum og götuumhverfi, trjáklippingar, illgresishreinsun, stýringu vinnuhóps við viðhald og framkvæmdir á grænum svæðum og að tryggja að öryggisreglum sé fylgt. Starfið er að miklu leyti unnið utandyra, við leitum því að einstaklingi sem nýtur þess að vinna í fjölbreyttum aðstæðum og er tilbúinn að vinna úti í öllum veðrum.
Starfssvið
- Ábyrgð á að leiða vinnuhóp sem sinnir viðhaldi og framkvæmdum á grænum svæðum (m.a. görðum, leiksvæðum og opnum grænum svæðum)
- Trjáklippingar og grisjun.
- Plöntun trjáa, runna og sumarblóma. Endurnýjun og viðhald á beðum, þar á meðal vökvun og almenn viðhaldsvinna.
- Umsjón með opnum leiksvæðum og skrúð- og borgargörðum.
- Grunnþjálfun starfsfólks í samráði við verkstjóra/yfirverkstjóra.
- Akstur bifreiða, vinnuvéla og annarra tækja.
- Eftirfylgni með öryggisreglum og notkun persónuhlífa eftir því sem við á.
- Samskipti við íbúa og önnur borgaryfirvöld um verkefni og ábendingar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Garðyrkjufræðingur eða sambærilegt.
- Þriggja ára reynsla af garðyrkjustörfum eða sambærilegu er æskileg.
- Hæfni í mannlegum samskiptum og hæfni til að leiða teymi.
- Skipulögð og fagleg vinnubrögð.
- Framtakssemi, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
- Almenn ökuréttindi
- Íslenskukunnátta B2 eða enskukunnátta B2 skv. samevrópskum matsramma fyrir tungumálakunnáttu.
- Líkamleg hæfni þar sem stór hluti starfsins krefst vettvangsvinnu við aðstæður sem geta verið erfiðar.
- Hæfni í öryggismálum og ábyrg notkun véla og tækja (t.d. krani, bifreið, lyftarar).
Nánar um starfið
- Um er að ræða fullt starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi kjarafélags.
- Nánari upplýsingar veitir Marta Guðrún Daníelsdóttir garðyrkjustjóri: marta.gudrun.danielsdottir@reykjavik.is
- Umsóknarfrestur er til og með 5. október 2026