Stuðningsfulltrúi félagsmiðstöðin Hekla
Félagsmiðstöðin Hekla óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa veturinn 2026-2027. Markmið frístundastarfs er að þjálfa félags- og samskiptafærni barna- og unglinga í gegnum leik og starf. Hekla félagsmiðstöðin stendur fyrir frítímastarfi, að skóla loknum og þjónustar börn og unglinga úr Klettaskóla/Korpuskóla.
Félagsmiðstöðin Hekla óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa veturinn 2026-2027.
Markmið félagsmiðstöðva er að þjálfa félags- og samskiptafærni barna- og unglinga í gegnum leik og starf. Félagsmiðstöðin Hekla stendur fyrir frítímastarfi, að skóla loknum og þjónustar unglinga úr Klettaskóla. Klettaskóli er sérskóli fyrir börn og unglinga með fötlun.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Í boði er 30-50% hlutastarf eftir hádegi á virkum dögum. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-16 ára börn og ungmenni.
- Leiðbeina börnum og unglingum í leik og starfi.
- Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
- Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla.
Hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
- Áhugi á að vinna með börnum og unglingum.
- Frumkvæði og sjálfstæði.
- Færni í samskiptum.
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall 30-50%
Ráðningarform Tímabundin ráðning
Nánari upplýsingar um starfið veitir Gunnlaugur Örn Heiðarsson
Gunnlaugur.Orn.Heidarsson@reykjavik.is
Félagsmiðstöðin Hekla - Kringlumýri
Suðurhlíð 9
105 Reykjavík