Til baka á starfasíðu

Aðstoðarforstöðumaður í frístundaheimilinu Bakkaseli

Frístundmiðstöðin Miðberg leitar að aðstoðarforstöðumanneskju í 100% starf 

Fullt starf Bakkasel, Breiðholtsskóla 111
Sækja um

Skrifstofa frístundamála leitar að aðstoðarforstöðumanneskju í 100% starf í frístundaheimilið Bakkasel við Breiðholtsskóla. Um tímabundið starf er að ræða með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Frístundaheimilin veita 6–9 ára börnum og foreldrum þeirra heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi frístundastarfs SFS og Menntastefnu Reykjavíkurborgar eru höfð að leiðarljósi.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð:

Umsjón með daglegri starfsemi frístundaheimilisins í samvinnu við forstöðumann.

  • Skipulagning frístundastarfsins í samráði við börn og starfsfólk.
  • Leiðbeina og taka þátt í leik og starfi með börnum.
  • Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla.
  • Þátttaka í að móta stefnu og framtíðarsýn.
  • Að veita starfsmönnum leiðsögn um framkvæmd vinnunnar og stuðla að lýðræðislegum starfsháttum og góðum starfsanda.
  • Er staðgengill forstöðumannns.

Hæfniskröfur:

  • Háskólapróf á sviði uppeldismenntunar, s.s. tómstunda- og félagsmálafræði eða sambærileg menntun.
  • Meistarapróf á sviði uppeldismenntunar eða stjórnunar eða mikil starfs- og stjórnunarreynsla á viðkomandi sérfræðisviði.
  • Reynsla af starfi með börnum.
  • Reynsla af félags- og tómstundastarfi.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og fagmennska í vinnubrögðum.
  • Skipulagshæfileikar og fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfinu.
  • Almenn tölvu- og samskiptamiðla kunnátta.
  • Góð íslenskukunnátta í máli og riti, C1
  • Góð enskukunnátta.

Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá.

Um tímabundna ráðningu er að ræða og þarf viðkomandi að hefja störf sem fyrst.

Frekari upplýsingar um starfið:

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis, stéttarfélags í almannaþjónustu.

Nánari upplýsingar um starfið veitir

Kristrún Lilja Daðadóttir

kristrun.lilja.dadadottir@reykjavik.is 

Sækja um