Stuðningsfulltrúi
Óskað er eftir öflugum stuðningsfulltrúum á nýlegan íbúðarkjarna í Úlfarsárdal.
Um er að ræða 50% starf í vaktavinnu dag-, kvöld-, nætur- og helgarvaktir og viðkomandi þarf að geta unnið allar vaktir.
Fjölbreytt starf í fallegu umhverfi og góðum hópi.
Tækifæri til að taka þátt í þróun innra starfs.
Í Rökkvatjörn búa sex einstaklingar og veitt er sólahringsþjónusta.
Unnið er eftir hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf, þjónandi leiðsögn og valdeflingu.
Í Rökkvatjörn er áhersla lögð á jákvæð og uppbyggileg samskipti og miðar þjónustan að því að efla færni og lífsgæði íbúa sem gerir þeim kleift að lifa sjálfstæðu lífi.
Um er að ræða tímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að hvetja og styðja einstaklinga til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð.
- Að styðja einstaklinga við athafnir daglegs lífs s.s. við heimilishald og samfélagsþátttöku.
- Að sinna umönnun og vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan íbúa og aðstoða þá varðandi heilsufarslega þætti eftir þörfum hverju sinni.
- Að styðja einstaklinga til félagslegrar þátttöku s.s. að rækta félagstengsl, stunda afþreyingu og að sækja menningarviðburði.
Hæfniskröfur
- Góð almenn menntun sem nýtist í starfi
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
- Reynsla af starfi með fötluðum æskileg.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, skipulagshæfni, stundvísi og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Góð íslenskukunnátta B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
- Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Björk Björgvinsdóttir starfandi forstöðumaður
anna.bjork.bjorgvinsdottir@reykjavik.is