Til baka á starfasíðu

Sérkennsla

Leikskólinn Ævintýraborg við Eggertsgötu leitar eftir starfsfólki í sérkennslu. Leikskólinn er 5 deilda með 85 börn á aldrinum 1-6 ára. Leikskólinn vinnur eftir hugmyndafræði Reggio Emilia og leggur mikla áherslu á virðingu og vellíðan. Viðbótarupplýsingar má nálgast á netinu: https://reykjavik.is/aevintyraborg-vid-eggertsgotu

Fullt starf Leikskólinn Eggertsgötu 102
Sækja um

Á Ævintýraborg er fjölmenningarlegt samfélag barna og starfsfólks sem vinnur eftir einkunnarorðunum virðing og vellíðan. Sérkennari sér um framkvæmd og eftirfylgd á námi og leik barna sem þurfa sértæka aðstoð og umönnun inn á deild. Unnið er í teymisvinnu þar sem allir hjálpast að og leiðsögn er fengin frá sérkennslustjóra og sérfræðingum frá Vesturmiðstöð.

Ævintýraborg er fimm deilda leikskóli með 85 börnum og starfar í anda Reggio Emilia. Við höfum nýlega tekið þátt í þróunarverkefni með 5 öðrum skólum við innleiðingu á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og erum þar af leiðandi orðinn Réttindaskóli.

Leikskólinn er staðsettur miðsvæðis í Reykjavík. Í nánasta umhverfi er Norræna húsið, Ægissíðan, Skerjafjörður og fallegar gönguleiðir og staðir sem gaman er að njóta.

Áhersla er lögð á barnið sem færan einstakling þar sem barnið er virkur þátttakandi í námsferlinu. Við viljum hvetja börnin áfram á einstaklingsmiðaðan hátt ásamt því að draga fram styrkleika hvers og eins. Leikskólinn starfar í tveimur húsnæðum á sömu lóðinni en lögð er áhersla á að skólinn er ein heild og því allir hluti af heildinni. Við leggjum mikla áherslu á góðan starfsanda og samvinnu.

Á leikskólanum færð þú frían hádegismat og átt rétt á sund- og menningarkorti. Auk þess er 36 stunda vinnuvika og samgöngustyrkur í boði fyrir þá sem nota almenningssamgöngur eða ganga/hjóla í vinnu.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Starfið er laust í haust.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að veita barni með sérþarfir leiðsögn og stuðning.
  • Að eiga samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa.
  • Að vinna samkvæmt einstaklingsnámskrá.
  • Að sinna þeim verkefnum er varða sérkennslu, og öðrum störfum innan leikskólans, sem yfirmaður felur honum.

Hæfniskröfur

  • Leikskólasérkennaramenntun, þroskaþjálfamenntun, sálfræðimenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af starfi með börnum er æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
  • Góð íslenskukunnátta - B2 samkvæmt íslenska tungumálarammanum -Self-assessment Grids (CEFR) - European Language Portfolio (ELP)
  • Hreint sakarvottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristín Petrína Pétursdóttir í síma 411-6750 og tölvupósti kristin.petrina.petursdottir@reykjavik.is

Leikskólinn Ævintýraborg við Eggertsgötu

Eggertsgata 35

102 Reykjavík

Sækja um