Til baka á starfasíðu

Stuðningsfulltrúi á heimili fyrir börn

Skemmtilegt og spennandi starf í boði á heimili fyrir börn. 

Hlutastarf Heimili fyrir börn Bleikargróf 6 110
Sækja um

Heimili fyrir börn óskar eftir ábyrgum og metnaðarfullum einstaklingi í starf stuðningsfulltrúa.

Markmið þjónustunnar er að búa börnum hlýlegt, friðsælt og öruggt heimili með hliðsjón af einstaklingsbundnum þroska, getu og aldri þeirra. Jafnframt að tryggja góð og jákvæð samskipti við foreldra/forsjáraðila.

Um er að ræða nýlega starfsemi þar sem börn eru þjónustuð í íbúðum þeirra. Sólarhringsþjónusta er veitt á heimilinu.

Spennandi tækifæri fyrir kraftmikla og áhugasama einstaklinga sem hafa áhuga á að eyða sumrinu í skemmtilegum hópi starfsmanna og íbúa.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Styður og aðstoðar íbúa við allar athafnir daglegs lífs og því sem við viðkemur heimilishaldi.
  • Styður einstaklinga til félagslegrar þátttöku s.s. rækta félagstengsl, stunda afþreyingu, sækja menningarviðburði og íþróttir.
  • Framfylgir einstaklingsáætlunum í samráði við einstaklinga og ábyrgðaraðila.
  • Skráning og meðferð gagna í samræmi við verklag starfsstaðar.
  • Tekur þátt í samstarfi við fagaðila, aðra starfsmenn og foreldra/aðstandendur.
  • Tekur þátt í fundum og teymisvinnu. sem tengjast starfinu.
  • Önnur þau störf sem starfsmanni kunna að vera falin af yfirmanni.

Hæfnikröfur:

  • Reynsla af starfi með fötluðum einstaklingum æskileg.
  • Áhugi á að starfa með börnum með einhverfu og/eða þekking á einhverfu.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni í starfi.
  • Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hæfni til að takast á við krefjandi vinnuumhverfi.
  • Íslenskukunnátta B1 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma).
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög, sem og reglur Reykjavíkurborgar.
  • Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.
  • 20 ára aldurstakmark.

Um er að ræða vaktavinnu í 25-70% hlutfalli, með möguleika á áframhaldandi starfi. 

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.

Starfshlutfall

25-70%

Nánari upplýsingar um starfið veitir

Heba Líf Ásbjörnsdóttir, Forstöðumaður

Heba.lif.asbjornsdottir@reykjavik.is

844-7388

Heimili fyrir börn

Bleikargróf 6, 108 Reykjavík

Sækja um