Afleysing - Höllin: Aðstoðarforstöðumaður í sértækri félagsmiðstöð
Við leitum að aðstoðarforstöðumanni í sértæku félagsmiðstöðin Höllina, afleysing til eins árs! Höllin er staðsett í Egilshöll og þjónustar fötluð börn að skóla loknum á aldrinum 10-16 ára í Árbæ, Norðlingaholti, Grafarholti og Úlfarsárdal og Grafarvogi.
Frístundamiðstöðin Brúin leitar að aðstoðarforstöðumanni í sértæku félagsmiðstöðin Höllina, afleysing til eins árs! Höllin er staðsett í Egilshöll og þjónustar fötluð börn að skóla loknum á aldrinum 10-16 ára í Árbæ, Norðlingaholti, Grafarholti og Úlfarsárdal og Grafarvogi.
Við óskum eftir að ráða metnaðarfullan og áhugasaman einstakling með menntun og reynslu sem nýtist í starfi.
Markmið starfsins er að veita fötluðum börnum, unglingum og foreldrum þeirra heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi starfsins eru höfð að leiðarljósi. Það felur í sér að að veita börnunum frítímaþjónustu óháð aldri þeirra, áhugasviði eða getu í umhverfi sem einkennist af hlýju, öryggi og virðingu.
Höllin tilheyrir Frístundamiðstöðinni Brúnni. Brúin starfrækir níu félagsmiðstöðvar í Árbæ, Grafarholti, Grafarvogi, Norðlingaholti og Úlfarsárdal sem heita Ársel, Holtið, Fjörgyn, Sigyn, Vígyn, Fellið, Plútó, Fókus og sértæka félagsmiðstöðin Höllin.
Helstu verkefni og ábyrgð
* Skipulagning á faglegu félagsmiðstöðvarstarfi fyrir fötluð börn og unglinga á aldrinum 10-16 ára.
* Leiðbeina börnum og unglingum í leik og starfi.
* Samráð og samvinna við börn, unglinga og starfsfólk.
* Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla.
* Starfsmannamál.
* Framkvæmd og skipulag starfsins í samvinnu við starfsmenn og ungmenni út frá viðmiðum og starfsreglum SFS.
*Aðstoðarforstöðumaður er staðgengill forstöðumanns
Hæfniskröfur
* Háskólapróf á sviði uppeldismenntunar, s.s. tómstunda- og félagsmálafræði eða sambærileg menntun.
* Meistarapróf á sviði uppeldismenntunar eða stjórnunar eða mikil starfs- og stjórnunarreynsla á viðkomandi sérfræðisviði.
* Reynsla af starfi með börnum og unglingum.
* Reynsla af frítímastarfi.
* Reynsla af stjórnun.
* Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
* Skipulags og stjórnunarhæfileikar.
* Góð færni í samskiptum.
* Almenn tölvu og samskiptamiðla kunnátta.
* Góð íslenskukunnátta.
Vinsamlegast látið ferilskrá fylgja umsókn.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis, launaflokkur 270.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Elísa Pálsdóttir , forstöðumaður í félagsmiðstöðinni Höllinni, elisa.palsdottir@reykjavik.is
Frístundamiðstöðin Brúin
Austurmiðstöð