Til baka á starfasíðu

Frístundaráðgjafi/leiðbeinandi félagsmiðstöðin Hofið

Hofið sértæk félagsmiðstöð fyrir börn og unglinga með fötlun óskar eftir að ráða frístundaráðgjafa/ frístundaleiðbeinendur í hlutastarf. Hofið er staðsett í Laugardalnum, miðsvæðis í Reykjavík.

Hlutastarf Félagsmiðstöðin Hofið 102
Sækja um

Hofið sértæk félagsmiðstöð sem heyrir undir frístundamiðstöðina Kringlumýri óskar eftir að ráða frístundaráðgjafa/ frístundaleiðbeinendur með umsjón í hlutastarf fyrir veturinn 2026-2027. 

Hofið þjónustar börn og unglinga með fötlun sem búa eða sækja skóla vestan Elliðaáa í Reykjavík. Hofið er staðsett að Leirulæk 2, 105 R og er opið alla daga eftir að skóla lýkur og til klukkan 17. Markmið Hofsins er að vinna gegn félagslegri einangrun barna og unglinga. Starfið er einstaklingsmiðað og börnin og unglingarnir taka þátt í að móta dagskrána.

Við leitum að starfsfólki til að sjá um tengingu barna og unglinga sem taka þátt í starfi Hofsins inn í opið félagsmiðstöðvarstarf. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Í boði eru hlutastörf, allt að 45%, með sveigjanlegum vinnutíma eftir hádegi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 10-16 ára börn og unglinga í sértæku starfi.
  • Framfylgja stefnu skóla- og frístundasviðs í málefnum frítímans.
  • Samráð og samvinna við börn, unglinga og annað starfsfólk.
  • Samskipti og samstarf við foreldra.

Hæfniskröfur

Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar

Frekari upplýsingar

Starfshlutfall allt að 45% og um tímabundna ráðningu er að ræða.

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Steinunn Sif Sverrisdóttir á hofid@reykjavik.is, sími 664 7774.

Félagsmiðstöðin Hofið 

Leirulæk 2, 105 Reykjavík

Sækja um