Til baka á starfasíðu

Fjölbreytt skaðaminnkandi starf á heimili fyrir karlmenn í miðbænum

Vesturmiðstöð leitar að metnaðarfullu starfsfólki til að starfa með karlmönnum með miklar og flóknar þjónustuþarfir á heimili sínu. Um er að ræða starf í 70 - 100% starfshlutfalli. 

Fullt starf Njálsgata 101
Sækja um

Vesturmiðstöð leitar að metnaðarfullu starfsfólki til að starfa með karlmönnum með miklar og flóknar þjónustuþarfir á heimili sínu. Um er að ræða í 70 - 100% starfshlutfalli. Markmið með þjónustu heimilisins er að mæta þörfum íbúa á heildstæðan, einstaklingsmiðaðan og umhyggjusaman hátt.

Starfsfólk veitir íbúum sértækan stuðning með það að markmiði að aðstoða íbúa við að halda heimili, eiga innihaldsríkt líf, styrkja sjálfsmynd og efla vald yfir eigin aðstæðum.

Á heimilinu er starfað eftir skaðaminnkandi hugmyndafræði og batamiðaðri nálgun og er áhersla lögð á notendasamráð. Starfsfólk starfar inn á heimili íbúa og er mikilvægt að starfsfólk treysti sér í að sinna krefjandi verkefnum, þar sem mannleg reisn og samkennd við íbúa er höfð að leiðarljósi.

Um er að ræða morgun-, kvöld- helgar- og næturvaktir í 70-100% starfshlutfalli. Umsækjandi þarf að vera 20 ára eða eldri.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Framfylgja einstaklingsáætlun íbúa og verklögum því tengdu.
  • Veita íbúum félagslegan stuðning og samveru.
  • Leiðbeina og veita íbúum sérstækan stuðning með tiltekt, þrif og persónulegt hreinlæti eftir því sem við á.
  • Koma að almennum heimilisstörfum, svo sem matseld og þrifum.
  • Hvetja og styðja íbúa til sjálfstæðs lífs.
  • Taka þátt í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir íbúa.

Hæfniskröfur

  • Góð almenn menntun.
  • Góð tölvukunnátta
  • Umburðalyndi og virðing fyrir fólki sem glímir við virkan vímuefnavanda.
  • Þekking og áhugi á skaðaminnkandi hugmyndafræði og notendasamráði er góður kostur.
  • Góð færni í mannlegum samskiptum og faglegum vinnubrögðum.
  • Hæfni til að takast á við krefjandi verkefni af yfirvegun, setja skýr og heilbrigð mörk.
  • Þolinmæði, sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki eru góðir kostir.
  • Íslenskukunnátta B2 eða hærra (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma).
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.

Hlunnindi

  • Stytting vinnuvikunnar
  • Samgöngu- og heilsuræktarstyrkir
  • Sund- og menningarkort

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Eflingar. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásrún Ósk Einarsdóttir forstöðukona í tölvupósti asrun.osk.einarsdottir@reykjavik.is

Sækja um