Til baka á starfasíðu

Stuðningsfulltrúi í hlutastarf í Grafarvogi

Óskað er eftir öflugum og jákvæðum starfsmanni í tímabundið starf í þjónustu við fatlað fólk. Starfið felst aðallega í vinnu aðra hverja helgi, með möguleika á vöktum í miðri viku. Starfshlutfall er um 30-40% og staðan er laus til loka árs eða eftir samkomulagi.

Hlutastarf Íbúðakjarni Móavegi 10 112
Sækja um

Tímabundið starf í þjónustu við fatlað fólk

Við leitum að ábyrgum og metnaðarfullum starfsmanni til að sinna stuðningi við fatlað fólk í búsetuþjónustu. Starfið felst í að veita einstaklingsmiðaðan stuðning sem miðar að því að efla sjálfstæði, færni og lífsgæði íbúa.

Um er að ræða tímabundið starf út haustið hið minnsta, í um 30-40% starfshlutfalli. Unnið er aðra hverja helgi og möguleiki er á aukavöktum í miðri viku eftir þörfum og samkomulagi.

Við leggjum áherslu á að veita framúrskarandi þjónustu í samræmi við hugmyndafræði sjálfstæðs lífs og þjónandi leiðsagnar. Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni og gefandi samskipti í jákvæðu starfsumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að styðja einstaklinga við athafnir daglegs lífs, svo sem heimilishald og samfélagsþátttöku.
  • Að hvetja og styðja einstaklinga til félagslegrar þátttöku, afþreyingar og menningarviðburða.
  • Að fylgjast með andlegri og líkamlegri líðan íbúa og veita stuðning eftir þörfum.
  • Að vinna í samræmi við stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum fatlaðs fólks með áherslu á aukið sjálfstæði, þátttöku og lífsgæði.
  • Önnur verkefni samkvæmt nánari fyrirmælum yfirmanns.

Hæfniskröfur

  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur.
  • Góð samskiptahæfni, jákvætt viðmót og þjónustulund.
  • Frumkvæði, ábyrgðarkennd og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
  • Æskilegt er að umsækjendur hafi náð 20 ára aldri.
Sækja um