Námsráðgjafi
Staða námsráðgjafa í Sæmundarskóla er laust til umsóknar til eins árs. Námsráðgjafi er við störf nú þegar í skólanum og munu því tveir námsráðgjafar starfa saman í teymi næsta skólavetur.
Einkunnarorð Sæmundarskóla eru gleði, virðing og samvinna. Þau gefa tóninn fyrir skólabraginn og eru leiðarljós í starfinu.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Að standa vörð um nám og velferð nemenda
- Að taka þátt í forvarnarverkefnum skólans
- Er í eineltisteymi skólans
- Að vera trúnaðarmaður og talsmaður nemenda
- Að veita nemendum, foreldrum og starfsfólki ráðgjöf varðandi nám, námstækni, námsvenjur, líðan, kvíða og samskiptavanda
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Starfsréttindi sem náms- og starfsráðgjafi
- Geta til að vinna sjálfstætt
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Stundvísi og samviskusemi
- Góð íslenskukunnátta. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans.
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.