Starfsmaður í stuðning/sérkennslu í leikskóla í Engjaborg
Starfsmaður í stuðning/sérkennslu á leikskólanum Engjaborg
Starfsmaður í stuðning/sérkennslu á Engjaborg
Starfsmaður í stuðning/sérkennslu í fullt starf óskast til starfa við leikskólann Engjaborg í Grafarvogi.
Leikskólinn Engjaborg tók til starfa árið 1994 í Grafarvogi. Leikskólinn er fyrir börn á aldrinum eins til sex ára. Þar dvelja að jafnaði um 70 börn á fjórum deildum.
Í Engjaborg er lögð áhersla á nám og velferð barna þar sem allir eru mikilvægir og hafa sömu réttindi. Námið fer fram í gegnum leikinn og lögð er áhersla á virkni og þátttöku allra. Í öllu starfi okkar leggjum áherslu á styrkleika barna og áhugasvið þeirra og að ólíkar aðferðir henti ólíkum aðilum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að veita barni/börnum með sérþarfir leiðsögn og stuðning.
- Gætir þess að barn sem nýtur sérkennslu einangrist ekki heldur sé hluti af hópnum og eigi hlutdeild í leikskólastarfinu.
- Að eiga samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa.
- Að vinna samkvæmt einstaklingsnámskrá.
- Að sinna þeim verkefnum er varða sérkennslu, og öðrum störfum innan leikskólans, sem yfirmaður felur honum.
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna út frá gildum og áherslum leikskólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf kennara æskilegt eða önnur menntun sem nýtist í starfinu.
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum kostur
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði, gleði og sköpun í starfi
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Íslenska B2 skv. samevrópska tungumálarammanum
- Áhugi á að vinna með börnum
Krafist er hreins sakavottorðs í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
Fríðindi í starfi
- Sundkort
- Menningarkort
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngusamningur ef notast er við almenningssamgöngur, gengið eða hjólað til vinnu.
- 36 stunda vinnuvika.
- Afsláttur og forgangur að leikskólaplássi fyrir barn/börn í Reykjavíkurborg
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags leikskólakennara.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Jónsson leikskólastjóri. olafur.jonsson@reykjavik.is, s. 8698224