Leikskólakennari Engjaborg
Leikskólakennari/leiðbeinandi á leikskólanum Engjaborg
Leikskólakennari / leiðbeinandi á Engjaborg
Leikskólakennari/leiðbeinandi í fullt starf óskast til starfa við leikskólann Engjaborg í Grafarvogi.
Leikskólinn Engjaborg tók til starfa árið 1994 í Grafarvogi. Leikskólinn er fyrir börn á aldrinum eins til sex ára. Þar dvelja að jafnaði um 70 börn á fjórum deildum.
Í Engjaborg er lögð áhersla á nám og velferð barna þar sem allir eru mikilvægir og hafa sömu réttindi. Námið fer fram í gegnum leikinn og lögð er áhersla á virkni og þátttöku allra. Í öllu starfi okkar leggjum áherslu á styrkleika barna og áhugasvið þeirra og að ólíkar aðferðir henti ólíkum aðilum.
Gildi Engjaborgar eru Vellíðan – Virðing - Sköpun
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara og gildum og áherslum leikskólans, einnig að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf kennara æskilegt
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum kostur
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði, gleði og sköpun í starfi
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Íslenska B2 skv. samevrópska tungumálarammanum
- Áhugi á að vinna með börnum
Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
Fríðindi í starfi
- Sundkort
- Menningarkort
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngusamningur ef notast er við almenningssamgöngur, gengið eða hjólað til vinnu.
- 36 stunda vinnuvika.
- Afsláttur og forgangur að leikskólaplássi fyrir barn/börn í Reykjavíkurborg
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags leikskólakennara.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Jónsson leikskólastjóri. olafur.jonsson@reykjavik.is, s. 8698224